Niðurstöður aðalfundar Icelandair Group liggja fyrir, en fundurinn var haldinn í gær. Fimm skipa stjórn félagsins en sex aðilar buðu sig fram.

Allir meðlimir stjórnarinnar gáfu áfram kost á sér og endaði það svo að stjórn félagsins er óbreytt frá fyrra ári. Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir hafði einnig boðið sig fram til setu í stjórninni en hún náði ekki kjöri.

Einnig voru samþykktar arðgreiðslur til hluthafa. Tillaga stjórnar gerði ráð fyrir að 3,5 milljarðar væru greiddir í arð, eða sem nemur 0,7 krónum á hlut, en sú tillaga hlaut brautargengi.