Stjórn Icelandic Group hf. [ IG ] hefur samþykkt að leggja tillögu fyrir hluthafa á komandi aðalfundi félagsins þess efnis að hluthafar samþykki að félaginu verði heimilt að taka víkjandi skuldabréfalán til 4 ára samanlagt að höfuðstólsfjárhæð í íslenskum krónum er samsvarar  41 milljón evra á þeim tíma sem skuldabréfalánið er veitt, með 23% föstum ársvöxtum, er veiti kröfuhafa rétt til þess að breyta kröfu samkvæmt skuldabréfaláninu á hendur félaginu í hluti í því á genginu 1.

Miðað við að framangreind fjárhæð væri fimm milljarðar evra, þá hefði þetta í för með sér að félagið gæfi út nýja hluti að  nafnverði allt að 11.444.332.050 eftir fjögur ár, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Til stendur að bjóða hluthöfum félagsins og fagfjárfestum að kaupa framangreind skuldabréf í lokuðu útboði. Andvirði  framangreindra skuldabréfa yrði varið til frekari styrkingar á innviðum félagsins og lækkunar á hlutfalli skammtímafjármögnunar í heildarfjármögnun félagsins.

Stjórn Icelandic Group hf. samþykkti ennfremur að falla frá áður samþykktri tillögu sinni um að leggja til við aðalfund aukningu á hlutafé um allt að jafnvirði 30 milljónum evra.

Stjórn Icelandic Group hf. hefur ákveðið að aðalfundur félagsins verði haldinn þann 18. apríl n.k. klukkan 16:00. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar.