Verið er að skipta út aðalstjórn Icelandic Group [ IG ] með öllu á næsta aðalfundi. Sjálfkjörið er í stjórnina. Tilkynnt var fyrir skömmu stjórn Icelandic Group muni leggja fyrir aðalfund tillögu um að afskrá félagið.

Stjórnarformaður félagsins, Magnús Þorsteinsson, ásamt stjórnarmanninum Guðmundi Pétri Davíðssyni, bjóða fram krafta sína til þess að sitja í varastjórn. Í lok desember 2007 sagði Magnús sig úr stjórn Eimskipafélagsins.

Aðrir stjórnarmenn sem víkja eru: Stefán Á. Magnússon, Steingrímur Pétursson og Páll Þór Magnússon.

Í framboði til stjórnar Icelandic Group eru:

Ágúst Helgi Leósson

Friðrik Jóhannsson

Guðmundur Kristjánsson

Gunnar Jónsson

Henrik Leth