Stjórn og stjórnendur Íbúðalánasjóðs taka undir með Má Guðmundssyni seðlabankastjóra að viðskiptalíkan sjóðsins ekki ganga upp. Már var gestur á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í gær og ræddi þar m.a. um málefni Íbúðalánasjóðs.

Í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði segir að um nokkra hríð hafi verið unnið skipulega að því að móta þann grunn sem skynsamlegt er að byggja starfsemi Íbúðalánasjóðs á.

„Tillögur að framtíðarskipulagi sjóðsins liggja nú þegar fyrir í megindráttum og hafa verið kynntar viðeigandi aðilum. Stjórnendur sjóðsins geta þó ekki kynnt þessar tillögur opinberlega, fyrr en helstu eftirlits- og umsagnaraðilar sjóðsins ná að fjalla ítarlega um þær. Einn þessara aðila er stjórnskipuð nefnd sem nú skoðar málefni sjóðsins. Þeirri nefnd er ætlað að skila tillögum um framtíð sjóðsins í næsta mánuði.“