Stjórn Invent Farma ehf. hefur samþykkt að ráðast í byggingu 2.000 til 3.000 fermetra hús undir lyfjaþróunarstarfsemi hér á landi. Að sögn Friðriks Steins Kristjánssonar, stjórnarformanns Invent Farma ehf., hyggst fyrirtækið hefja byggingaframkvæmdir hér á landi á miðju næsta ári ef öll tilskylin leyfi fást. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.

Friðrik sagði að kostnaðaráætlun ætti að liggja fyrir skömmu eftir áramót. Félagið hafði fengið vilyrði fyrir lóð í Vatnsmýrinni við aðsetur Háskólans í Reykjavík. Nú er ljóst að húsið verður inni á lóð HR. Unnið er að deiliskipulagi fyrir svæðið.

Gert er ráð fyrir að 30 til 40 starfsmenn vinni þarna við lyfjaþróun þegar starfsemin verður fullmönnuð en fyrirtækið Invent Farma rekur nú tvær lyfjaverksmiðjur  í Barcelóna, sem keyptar voru fyrr á árinu. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu virkra lyfjaefna (API). Helstu markaðir félagsins eru í Evrópu, Bandaríkjunum og í Japan. Laboratorios Lesvi sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á samheitalyfjum, bæði undir eigin vörumerkjum til sölu á Spáni og undir vörumerkjun annarra. 300 starfsmenn vinna hjá fyrirtækjunum þar af  60 á rannsóknar- og þróunardeild félagsins. Ætlunin er að þróa samheitalyf sem ekki er unnt að þróa með sama hætti á Spáni vegna einkaleyfalaga. Það gerir Ísland að ákjósanlegu landi fyrir þróunarstarf af þessu tagi og því er ætlunin að flytja þróunarstarfið hingað til lands.