Stjórn ISB holding hefur verið tilkynnt að ákveðið hafi verið að skipta um stjórn. Núverandi stjórn ISB holding skipa Ólafur Ísleifsson, formaður stjórnar, Ástu Þórarinsdóttur og Maríu Björgu Ágústsdóttur. ISB holding fer með 95% hlut í Íslandsbanka. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Skilanefndin sem skipaði stjórn ISB holding lætur af störfum um áramót og segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis að breytingar væru framundan samhliða því í samtali við Morgunblaðið.

Tilkynnt verður um nýja stjórnarmenn ISB holding þegar FME hefur metið hæfi þeirra.