Stjórn Íslandsbanka hefur fjallað um málefni einkahlutafélaga núverandi starfsmanna bankans sem stofnuð voru fyrir tilstilli Glitnis banka hf. og voru hluti af hvata- og tryggðakerfi bankans. Beinir stjórnin því til viðkomandi starfsmanna að félögin verði gefin upp til gjaldþrotaskipta.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Íslandsbanka en um  er að ræða 9 einkahlutafélög sem fengu á árinu 2008 lán hjá Glitni banka hf. upp á samtals um 4,2 milljarða króna til hlutabréfakaupa í bankanum.

Þessi tegund hvatakerfa var algeng í íslenskum fjármálafyrirtækjum um nokkurra ára skeið eins og nokkuð hefur verið fjallað um.

Fram kemur að níu núverandi starfsmenn Íslandsbanka voru í hópi starfsmanna sem í maí 2008 þáðu tilboð vinnuveitanda síns um stofnun einkahlutafélags í þeirra eigu. Félögunum var veitt lán til kaupa á hlutabréfum í Glitni Banka hf. Þetta fyrirkomulag var kynnt fyrir starfsmönnunum af hálfu bankans sem hluti af hvata- og tryggðarkerfi bankans með sambærilega virkni og kaupréttur. Hlutabréfin mátti ekki selja fyrr en allt að 3 árum liðnum, samkvæmt lánasamningi.

„Hlutabréfakaupin voru tilkynnt til regluvarðar Glitnis banka. Samkvæmt upplýsingum stjórnar var enginn arður greiddur út úr félögunum og fjárhagslegur ávinningur umræddra starfsmanna var því enginn af þessum samningum,“ segir í tilkynningunni.

John E. Mack, varaformaður stjórnar Íslandsbanka sem á sæti í starfskjaranefnd bankans, segir að stjórn Íslandsbanka telji þessa tegund hvatakerfis gagnrýniverða.

„Þar sem lánveitingar af þessu tagi hafa verið mikið í umræðunni telur stjórnin rétt að upplýsa um niðurstöðu sína opinberlega. Það er niðurstaða stjórnar að lánamál umræddra einkahlutafélaga verði afgreidd með sama hætti og önnur sambærileg mál í samræmi við almennar lánareglur bankans. Það hefur í för með sér að félögin fari í gjaldþrotameðferð,“ segir Mack í fyrrnefndri tilkynningu.   „Það er skoðun stjórnar bankans að þessi niðurstaða hafi ekki áhrif á hæfi viðkomandi starfsmanna til að sinna áfram starfsskyldum sínum innan bankans, né hafi hún sem slík áhrif á framgang þeirra innan bankans í framtíðinni. Þessi niðurstaða stjórnar er m.a. studd utanaðkomandi lögfræðiáliti sem unnið hefur verið fyrir bankann.“