Stjórn Landic Property hf. hefur óskað eftir því að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en kröfuhafar Landic Property felldu frumvarp til nauðasamnings fyrir félagið.

79 kröfuhafar samþykktu frumvarpið, 6 sátu hjá eða mættu ekki, en 2 höfnuðu frumvarpinu.  Þeir sem ráða yfir  97,65% af kröfufjárhæðum samþykktu frumvarpið, en hlutfall höfðatölu þeirra sem samþykktu frumvarpið var 83,5%.

Hvort hlutfall um sig hefði að lágmarki þurft að vera 96% svo frumvarpið teldist samþykkt.  Í ljósi niðurstöðu kröfuhafafundar hefur stjórn félagsins því óskað eftir gjaldþrotaskiptum.

Fram kemur að eftir endurskipulagningu síðustu mánaða er Landic Property hf. eignarhaldsfélag.  Helstu eignir félagsins eru reiðufé, nálægt 900 milljónir króna, kröfuréttindi um 300 milljónir króna, og 16% hlutafjár í fasteignafélaginu Reitir.  Heildarskuldir félagsins eru um það bil 120 milljarðar króna.