Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða hefur sent frá sér ályktun þar sem hún mótmælir harðlega hvers konar nýjum álögum á starfsemi lífeyrissjóða, hvort sem þær eru í formi hækkunar á gjaldtöku eða með nýjum sköttum.

Í ályktuninni segir að stjórnvöld ætli að leggja á sérstakan 0,0814% eignarskatt á heildareignir samtryggingahluta lífeyrissjóða vegna áranna 2012 og 2013. Jafnframt ætli stjórnvöld að lækka frádráttarbært iðgjald til viðbótarlífeyrissparnaðar úr 4% í 2% næstu þrjú árin. Þá hefur undanfarna daga verið greint frá áformum um verulega hækkun gjaldtöku til að standa undir rekstri Fjármálaeftirlitsins og embættis umboðsmanns skuldara á árinu 2012. Einnig voru uppi áform um sérstakan 10,5% fjársýsluskatt á starfsemi lífeyrissjóða, sem reyndar hefur vegna mikillar andstöðu nú verið horfið frá.

Gangi þessi áform stjórnvalda eftir er ljóst að þau munu auka álögur og kostnað lífeyrissjóðanna og hafa þau áhrif að lífeyrisgreiðslur munu lækka til sjóðfélaga, sem eru eigendur sjóðanna.