Stjórn Nýherja hf. samþykkti á fundi sínum 19. október að hækka hlutafé félagsins um 10.000.000 ISK að nafnverði. Hlutaféð verður nýtt til að efna samning við seljendur Applicon AS sem Nýherjasamstæðan samdi um kaup á í byrjun þessa mánaðar. Söluverð hlutafjárins er DKK 13,043.482 eða sem svarar til 132,5 millj. ISK. Hlutirnir eru því gefnir út á genginu 13,25.

Jafnframt nýtir Nýherji hf. eigin hluti að nafnverði 664.440 í sama skyni miðað við sama gengi. Heildarsöluverð hlutanna verður þvi 141,3 millj. kr.