Stjórn Orkuveit Reykjavíkur heldur aukafund í dag klukkan 17. Þar verður meðal annars farið yfir starfsmannamál félagsins en fram hefur komið í fjölmiðlum að stéttarfélög hafi verið látin vita af verðandi hópuppsögnum hjá félaginu.

Trúnaðarmenn starfsmanna Orkuveitunnar hafa lagt til að starfshlutfall verði skert í stað hópuppsagna.