Frambjóðendur til stjórnar í Össur á aðalfundi félagsins sem haldinn verður síðar í dag eru eftirtalin:

  • Niels Jacobsen, núverandi stjórnarformaður, og forstjóri og framkvæmdastjóri William Demant Holding A/S. Hann býr í Danmörku.
  • Kristján Tómas Ragnarsson, varaformaður stjórnarinnar. Kristján er prófessor í endurhæfingu við Ichan læknaskólann við Mount Sinai sjúkrahúsið í New York, en hann býr í Bandaríkjunum.
  • Arne Boye Nielsen. Hún hefur setið í stjórn síðan árið 2009, en hún starfar einnig fyrir William Demant Holding A/S og býr hún í Danmörku.
  • Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, sem setið hefur í stjórn síðan 2013 er sjálfstæður ráðgjafi en áður starfaði hún fyrir Actavis. Hún býr á Íslandi.
  • Svafa Grönfeldt. Svafa starfar sem framkvæmdastjóri hjá Alvogen, en hún hefur verið í stjórninni síðan 2008, og býr hún í Bandaríkjunum.

Um er að ræða sömu frambjóðendur og sitja nú í stjórn félagsins.