Í tilefni fréttar um mögulegt yfirtökutilboð í Össur hf.  hefur félagið sent frá sér yfirlýsingu þar sem staðfest er að félagið og tilteknir hluthafar þess hafa átt  í viðræðum við mögulega kaupendur um kaup á hlut í félaginu. Í tilkynningunni segir að slík viðskipti hafa ekki verið ákveðin og engar ásættanlegar tillögur hafa borist.

"Stjórnendur félagsins eiga ekki von á að viðskipti á þeim nótum sem nefnd voru í fréttinni muni eiga sér stað á næstunni, þótt gera megi ráð fyrir að tilteknir hluthafar muni áfram vinna að sölu hluta sinna í félaginu," segir í yfirlýsingunni.