Kosið hefur verið í stjórn nýstofnaðrar ráðstefnuborgar Reykjavíkur og hana skipa Lára B. Pétursdóttir, Congress Reykjavík, Ingibjörg Ólafsdóttir, Radisson Blu Hótel Saga, Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, fyrir hönd Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss, Addý Ólafsdóttir, markaðs- og viðburðastjóri Icelandair, fyrir hönd Icelandair Group, og Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, fyrir hönd Reykjavíkurborgar, sem er formaður stjórnar.