Stjórn Ríkisútvarpsins (RÚV) harmar ályktun flokksráðs VG um síðustu helgi og hafnar þeim aðdróttunum sem þar er beint að starfsfólki og starfsemi RÚV.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn RÚV en fram kemur að stjórnin telur ályktunina meiðandi fyrir starfsfólk Ríkisútvarpsins og lýsa fádæma vanþekkingu flutningsmanna og þeirra sem hana samþykktu.

„Stjórn Ríkisútvarpsins telur að starfsfólki Ríkisútvarpsins hafi tekist afar vel – við erfiðar aðstæður með takmarkað og þverrandi fjármagn – að uppfylla þau skilyrði sem starfseminni eru sett í þjónustusamningi við menntamálaráðherra,“ segir í tilkynningunni.

„Stjórn Ríkisútvarpsins stendur nú í annað skipti á einu ári frammi fyrir mjög alvarlegum niðurskurði sem ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið. Ekkert tillit var tekið til þess árangurs sem náðst hafði í upphafi síðasta árs í hagræðingu á starfsemi Ríkisútvarpsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir stjórnar og stjórnenda til þess að draga úr kröfum ríkisstjórnarinnar um niðurskurð sem mun hafa í för með sér uppsagnir starfsmanna og samdrátt í dagskrárframboði.“