Stjórn Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, var endurkjörin á síðasta aðalfundi samtakanna til næstu tveggja ára.

Í stjórn Samorku eru þau Guðrún Erla Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur, Kristján Haraldsson, orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða, og Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets.

Fram kemur á vef Samorku að þá var Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, endurkjörinn sem varamaður í stjórn.