Stjórn Skipta hf. ákvað á fundi sínum í dag, 7. apríl 2008, að óska eftir því við OMX Nordic Exchange Iceland hf. (OMX ICE), að hlutabréf félagsins verði tekin úr viðskiptum af aðalmarkaði OMX ICE. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Meginástæðan er sú að Skipti hf. uppfylla ekki lengur þau skilyrði sem OMX ICE  setur um lágmarksdreifingu á eignarhaldi þar sem stærsti hluthafinn, Exista hf., hefur tryggt sér yfir 94% hlutafjár í félaginu.