Níu menn koma nýir inn í stjórn Viðskiptaráðs Íslands, en niðurstöður kosninga voru kynntar á aðalfundi Viðskiptaráðs í morgun. Þeir sem koma nýir inn eru og Andri Guðmundsson, Andri Þór Guðmundsson, Birna Einarsdóttir, Birkir Hólm Guðnason, Finnur Oddsson, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Helgi Anton Eiríksson, Knútur G. Hauksson og Viðar Þorkelsson.

Út úr stjórninni fara meðal annars Ari Edwald, Brynja Halldórsdóttir, Björgólfur Jóhannsson, Hrund Rudólfsdóttir, Höskuldur Ólafsson, Kristín Pétursdóttir, Margrét Pála Ólafsdóttir og Steinþór Pálsson.

Formaður stjórnarinnar er Hreggviður Jónsson en nýja stjórn Viðskiptaráðs Íslands má sjá hér að neðan:

  • Andri Guðmundsson, H.F. Verðbréf
  • Andri Þór Guðmundsson, Ölgerðin
  • Ásbjörn Gíslason, Samskip
  • Birna Einarsdóttir, Íslandsbanki
  • Birkir Hólm Guðnason, Icelandair
  • Eggert Benedikt Guðmundsson, N1
  • Eyjólfur Árni Rafnsson, Mannvit
  • Finnur Oddsson, Nýherji
  • Gylfi Sigfússon, Eimskip
  • Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Actavis
  • Helga Melkorka Óttarsdóttir, LOGOS
  • Helgi Anton Eiríksson, Icelandic Seafood
  • Hörður Arnarsson, Landsvirkjun
  • Katrín Olga Jóhannesdóttir, Já upplýsingaveitur
  • Knútur G. Hauksson, Klettur
  • Sigrún Ragna Ólafsdóttir, VÍS
  • Sævar Freyr Þráinsson, Síminn
  • Viðar Þorkelsson, Valitor