Stjórn Viðskiptaráðs Íslands telur ekki rétt að slíta aðildarviðræðum við ESB á þessum tímapunkti líkt og lagt er til í fyrirliggjandi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra. Þetta kemur fram í nýrri ályktun stjórnarinnar.

Fram kom í ályktun stjórnar Viðskiptaráðs í nóvember 2012 að stjórnin teldi brýnt að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið yrðu til lykta leiddar og að kapp yrði lagt á að ná sem allra bestum samningi sem síðan yrði lagður í dóm þjóðarinnar.

„Í ljósi þess að hvorugur núverandi stjórnarflokka er fylgjandi ESB aðild má færa rök fyrir þeirri afstöðu að torvelt gæti reynst að halda aðildarviðræðum áfram á þessum tímapunkti. Þrátt fyrir það telur stjórn Viðskiptaráðs ekki rétt að slíta viðræðunum. Með slíkri ákvörðun væri lokað á mikilvægan valkost í efnahagsmálum, einkum hvað varðar framtíðarskipan peningamála. Með hliðsjón af þeim miklu hagsmunum sem eru að veði fyrir lífskjör í landinu er mikilvægt að skerpa betur á þeim valkostum sem í boði eru áður en jafn afdráttarlaus ákvörðun er tekin,“ segir í ályktun stjórnar Viðskiptaráðs.

Stjórn Viðskiptaráðs Íslands telur að skynsamleg sáttaleið í þessu erfiða máli væri að gera hlé á aðildarviðræðum við ESB til loka kjörtímabilsins í stað þess að slíta þeim.