„Þegar ég tók við stjórnarformennsku í FME í júní 2011 var greiðsla fyrir vinnuna 600.000 kr. Ein af ástæðunum fyrir þeirri háu greiðslu var sú mikla vinna sem staðan krafðist vegna endurreisnar fjármálakerfisins og FME,“ segir Aðalsteinn Leifsson í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hann svarar skrifum Eyglóar Harðardóttur, félagsmálaráðherra, á heimasíðu sinni.

Eygló var að tala um laun karla og kvenna og konur veldu frekar störf sem tengdust velferð. Þau störf væru verr launuð en ýmis störf þar sem karlmenn væru í meirihluta. Stjórnarformaður FME hefði 600 þúsund krónur í laun á mánuði meðan stjórnarformaður Tryggingastofnunar hefði 60 þúsund krónur.

Bað um launalækkun

Þessu svarar Aðalsteinn: „Haustið 2012 bað ég sjálfur ráðherra um að lækka launin um þriðjung vegna þess að uppbygging fjármálakerfisins og FME gengi vel og því mætti búast við að álagið myndi minnka. Með þessu vildi ég undirstrika að sýnd væri ráðdeild í störfum FME og gefa fordæmi um að gæta nægjusemi í launum á fjármálamarkaði. Ráðherra varð við þessu og því eru laun stjórnarformanns 400.000 kr. - ekki 600.000 kr.“