Sigurður Helgason, stjórnarformaður Icelandair Group keypti í gær hlutafé í félaginu fyrir  tæplega 2,6 milljónir króna. Keypti hann 505 þúsund hluti á genginu 5,10 krónur á hlut, sem var markgengi gærdagsins. Sigurður á núna 990 þúsund hluti í Icelandair Group. Heildarútgefið hlutafé í Icelandair Group er 5 milljarðar hluta.

Í hlutafjárútboði Icelandair Group í desember 2010 keypti Sigurður 485 þúsund hluti í félaginu á genginu 2,5 eða fyrir rúmlega 1,2 milljónir króna.