Asthildur Margret Otharsdóttir
Asthildur Margret Otharsdóttir
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Stjórnarformaður Marel verður áfram með 7500 evrur í laun á mánuði eða 1,2 milljónir króna. Þetta var ákveðið á aðalfundi félagsins í dag. Almennir stjórnarmenn verða með tæplega 388 þúsund krónur.

Ásthildur M. Otharsdóttir er stjórnarformaður Marels. Hún tók við stjórnarformennskunni af Árna Oddi Þórðarsyni sem varð forstjóri síðla síðasta árs. Auk hennar sitja fjórir aðrir í stjórninni.