Lagt verður til á aðlafundi FL Group að stjórnarformaður félagsins fái 700 þúsund krónur í stjórnarlaun. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Tillaga um laun annarra stjórnarmanna eru eftirfarandi: Varaformaður 500 þúsund á mánuði. Aðrir stjórnarmenn 350 þúsund á mánuði.

Í tilkynningunni segir að varamönnum verður greiddar 100 þúsund krónur fyrir hvern setinn fund. Stjórnarmenn skulu fá fasta þóknun fyrir hvern fund sem þeir sitja í undirnefndum stjórnar og skal sú þóknun vera 200 þúsund til handa formönnum nefnda fyrir hvern fund en 100 þúsund til handa öðrum nefndarmönnum.

Þóknun fyrir fundasetu í undirnefndum á tímabilinu skal þó ekki vera hærri en 1,2 milljónir fyrir formann nefndar og 600 þúsund fyrir aðra nefndarmenn.