Stjórnarformaður House of Fraser, sem er í eigu Baugs að stórum hluta, gaf frá sér yfirlýsingu í gær til að undirstrika að fjárhagsleg staða bresku verslunarinnar væri góð, og að birgjar þyrftu ekki að hafa áhyggjur af fyrirtækinu. Frá þessu er greint í Independent í dag.
Yfirlýsing stjórnarformannsins kom eftir að orðrómar þess efnis heyrðust að íslenska ríkisstjórnin hygðist þjóðnýta Kaupþing í næstu viku. Þeir orðrómar ýttu undir tal þess efnis að Baugur hygðist selja einhverjar af sínum bestu eignum í Bretlandi, að því er kemur fram í frétt Independent.
„Mikil umfjöllun hefur verið um efnahagsástandið á Íslandi og hvaða áhrif hún hefur á Baug,“ segir stjórnarformaðurinn Don McCarthy. „House of Fraser vill ítreka að þessi mál hafa ekki áhrif á styrk rekstursins eða starfsemina,“ segir hann. „Tenglsin milli Baugs og House of Fraser eru einungis þau að síðarnefnda félagið er kjölfestufjárfestir. Það eru engin dagleg viðskipti sem eiga sér stað milli félaganna, og tengsl fyrirtækjanna hafa engin áhrif á daglegan rekstur House of Fraser,“ segir í yfirlýsingu McCarthy.
Haft er eftir talsmanni Baugs í fréttinni að ástandið á Íslandi hefði engin bein áhrif á starfsemi sem Baugur fjárfestir í á Bretlandi. Jafnframt bendir talsmaðurinn á að stærstur hluti erlendra fjárfestinga Baugs séu fjármagnaðir utan Íslands. Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, segir í samtali við Independent að eignir Baugs í Bretlandi, Skandinavíu og Bandaríkjunum bæru enga áhættu gagnvart íslenska hagkerfinu.
Glitnir, sem var þjóðnýttur í byrjun vikunnar, veitti ráðgjöf við kaup Baugs á hlutnum í House of Fraser.