Gunnar J Felixson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar, býður sig ekki fram í stjórn útgerðarfélagsins. Aðrir stjórnarmenni munu sitja áfram. Hann er 68 ára gamall.

Magnús Helgi Árnason býður nýr fram krafta sína, en hann situr ekki í núverandi stjórn Vinnslustöðvarinnar, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Sjálfkjörið er í stjórnina.

Eftirtaldir eru í framboði:

Haraldur Gíslason Hjálmar Þór Kristjánsson Leifur Leifsson Sigurjón Óskarsson Magnús Helgi Árnason

Til vara:

Guðmundur Kristjánsson Kristín Gísladóttir