Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarmaður í Icelandair Group keypti í dag 308.960 hluti í Icelandair Group. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Keypti hún bréfin á 7,76 krónur á hlut og nemur því kaupverðið tæplega 2,4 milljónum króna.

Heiðrún sem kom ný inn í stjórn félagsins fyrr á þessu ári á eftir viðskiptin 400.000 hluti í félaginu. Nemur markaðsvirði þeirra hluta um 3,1 milljón króna.