Eagle Investments Holdings S.A., félag í eigu Arnar Andréssonar, stjórnarmanns í Atorku Group [ ATOR ], hefur fjármagnað 50.000.000 hluti í Atorku Group, markaðsvirði hlutarins er um 373 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.

Með þessari fjármögnun selur fjárfestingafélag hans 50.000.000 hlut á genginu 7,46.

„Ekki er um eiginlega sölu að ræða heldur er um að ræða fjármögnun, Eagle investments Holdings heldur atkvæðisrétti, rétti til arðs og öðrum réttingum yfir hlutunum," segir í tilkynningunni.