Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarmaður í Icelandair Group, hefur aukið við hlut sinn í félaginu. Samkvæmt tilkynningu til Kauphallar í dag keypti Katrín Olga 187.753 hluti á genginu 5,27, eða fyrir tæplega milljón krónur. Eftir viðskiptin á Katrín rúmlega 411 þúsund hluti.

Í síðustu viku var tilkynnt um kaup Sigurðar Helgasonar, stjórnarformanns félagsins. Í þeim fyrri, sem voru gerð 18. ágúst, keypti Sigurður 505.000 hluti á genginu 5,10 á alls um 2,6 milljónir króna. Í síðari viðskiptunum keypti hann 3.495.000 hluti á genginu 5,21. Kaupverð hlutarins þá var því rúmlega 18 milljónir króna.