Kjörnir stjórnarmenn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar (LSK) af hálfu bæjarstjórnar og starfsmanna, lýsa furðu sinni á hörðum aðgerðum Fjármálaeftirlitsins (FME) og fjármálaráðuneytisins, sem skipað hafa umsjónarmann með sjóðnum, þrátt fyrir að stjórn hans og framkvæmdastjóri hafi ítrekað og að eigin frumkvæði upplýst fulltrúa FME um fjárfestingar hans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá kjörnum fulltrúum lífeyrissjóðsins.

Þar kemur fram að í efnahagsumrótinu á umliðnum vetri hafi stjórn LSK tekið yfirvegaða og upplýsta ákvörðun um, að besta leiðin til að verja hagsmuni sjóðfélaga væri að ávaxta laust fé sjóðsins til skamms tíma hjá Kópavogsbæ, „þótt það væri ekki í fullu samræmi við heimildir, enda ber Kópavogsbær fulla ábyrgð á öllum skuldbindingum sjóðsins umfram eignir,“ segir í tilkynningunni.

Þá er vitnað í endurskoðunarbréf PricewaterhouseCoopers hf. með ársreikningi LSK 2008, þar sem segir:

„Þótt ekki sé ástæða til að draga í efa að með þessum ráðstöfunum sínum hafi stjórnendur sjóðsins talið sig vera að tryggja sem best hag sjóðsins við óvenjulegar efnahagsaðstæður þá verður ekki hjá því komist að við sem endurskoðendur sjóðsins, sbr. 42. gr. [laga nr. 129/1997], gerum stjórn sjóðsins og Fjármálaeftirlitinu þegar í stað viðvart um þessi atvik.“

Í tilkynningunni kemur fram að á fundi, sem LSK boðaði til með fulltrúum FME 19. maí sl., hafi verið gert samkomulag um, að sjóðurinn hefði frest til 31. júlí nk. til að gera úrbætur í samræmi við fjárfestingarheimildir.

„Það samkomulag hefur FME og fjármálaráðuneytið ákveðið nú að virða ekki,“ segir í tilkynningunni.

„Hér er um að ræða verðtryggt skuldabréf, útgefið af Kópavogsbæ, sem var undir lögbundnu 10% hámarki af heildareignum LSK, þegar það var gefið út. Vegna verðbólgu og áfallinna vaxta auk eignarýrnunar LSK í tengslum við bankahrunið, fór uppreiknað verð bréfsins yfir 10% hámarkið í 10,57% af heildareignum sjóðsins. Vegna góðrar ávöxtunar sjóðsins það sem af er árinu, er hlutfallið nú þegar orðið lægra og innan lögboðinna marka. Öðrum kröfum FME um úrbætur hefur verið sinnt.“ Þá segir jafnframt:

„Við treystum því, að þegar fjármálaráðuneytið og FME hafa kynnt sér alla málavöxtu, liggi fyrir að hagsmunir sjóðfélaga hafi verið hafðir að leiðarljósi.“

Undir tilkynninguna skrifa Gunnar I. Birgisson, formaður, Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður, Flosi Eiríksson, ritari, Jón Júlíusson, stjórnarmaður og Ómar Stefánsson, stjórnarmaður.