Peter Müller, stjórnarformaður Roskilde Bank, hefur tilkynnt stjórn bankans og hluthöfum að hann vilji segja stjórnarsæti sínu lausu. Einnig hefur Peter Holm, stjórnarmeðlimur, tilkynnt um þá ósk sína að losna úr stjórninni.

Stjórn Roskilde Bank fundaði í morgun með hluthöfum bankans.

Haldinn verður hluthafafundur í lok september og mun dagskrá hans liggja fyrir a.m.k. 2 vikum áður.

Roskilde Bank hrundi fyrir tæpum mánuði síðan og tryggði danski Seðlabankinn honum fjármagn með því skilyrði að unnið yrði að sölu Roskilde Bank og að bankinn aðhefðist ekkert stórvægilegt án samráðs.