Á aðalfundi Hands Holding hf. þann 19. mars 2007 urðu breytingar í stjórn félagsins. Stjórnina skipa nú Aðalsteinn Valdimarsson, sem er stjórnarformaður, Árni Pétur Jónsson, Ólafur Þór Jóhannesson, Ari Edwald og Björgvin Ingi Ólafsson. Úr stjórn gengu Gunnlaugur M. Sigmundsson, sem gegnt hafði stjórnarformennsku og Guðmundur Ólason.

Hands Holding er eignarhaldsfélag í upplýsingatæknigeiranum og meðal dótturfélaga þess eru Opin Kerfi Group og hugbúnaðarfyrirtækin HugurAx, Landsteinar Strengur, Hands ASA í Noregi og SCS í Kaliforníu. Velta dótturfélaga Hands Holding á árinu 2006 var tæplega 20 milljarðar.