Umframeftirspurn í fagfjárfestaútboði á hlutabréfum í Eimskipi var um 50%, en tilboðum fyrir 8.340 milljónir króna var tekið. Alls bárust tilboð fyrir ríflega 12.000 milljónir króna, að því er segir í tilkynningunni. Tilboðum var tekið á genginu 208 krónur á hlut. Seld voru 20% hluta í félaginu.

Þar segir jafnframt að í framhaldi af móttöku tilboða í lokaða útboðinu hafa lykilstjórnendur Eimskips ákveðið að falla frá öllum kaupréttum sem þeim hafði verið úthlutað af félaginu frá árinu 2010.

Eins og greint var frá á vb.is fyrr í dag ákvað Almenni lífeyrissjóðurinn að taka þátt í útboðinu, en gerði hins vegar þann fyrirvara á sínu tilboði að fallið yrði frá öllum kaupréttarsamningum sem gerðir hafa verið við starfsmenn Eimskips. Munu fleiri þátttakendur í útboðinu hafa gert sambærilegan fyrirvara.

Almennt útboð hefst næstkomandi þriðjudag, 30. október kl. 10.00 og stendur til kl. 16.00 föstudaginn 2. nóvember. Í almenna útboðinu gefst fjárfestum og einstaklingum kostur á að skrá sig fyrir hlutum í Eimskip á sama verði og hlutabréf voru seld í lokaða útboðinu. Í almenna útboðinu verða samtals seldir 10.000.000 hlutir eða samtals 5% af útgefnu hlutafé. Verði umframeftirspurn í almenna útboðinu hefur félagið heimild til að bjóða til sölu 6.000.000 eigin hluti eða 3% af útgefnu hlutafé. Samtals verður því boðinn til sölu allt að 8% hlutur í félaginu.