David Bake, forstjóri Flögu Group, hefur keypt í félaginu fyrir 6,8 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Um er að ræða 2.880.000 hluti og fóru viðskiptin fram á genginu 2,36. Eftir viðskiptin á hann 5.449.000 hluti og á kauprétt að 3.000.000 hlutum.

Rósa Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Flögu Group, hefur keypt fyrir um 3,1 milljón króna í félaginu. Um er að ræða 1.331.000 hluti, keypta á genginu 2,36. Eftir viðskiptin á hún 1.531.000 hluti.