Stjórnendur hjá um 95% fyrirtækjanna telja núverandi aðstæður í efnahagslífinu vera slæmar (37%) eða mjög slæmar (58%), um 5% telja þær hvorki góðar né slæmar.

Þetta kemur fram í könnun Samtaka atvinnulífsins (SA) á stöðu og framtíðarhorfum hjá 500 stærstu fyrirtækjum landsins.

Ekkert þeirra fyrirtækja sem svöruðu könnuninni telja aðstæður vera góðar. Þegar horft er sex mánuði fram í tímann búast um 29% fyrirtækjanna við að aðstæður verði þá nokkuð betri, um 33% telja að þær verði verri og um 38% búast þá við að aðstæður verði óbreyttar frá því sem nú er.

Aukinnar bjartsýni gætir þegar horft er tólf mánuði fram í tímann, en þá býst meirihluti fyrirtækjanna eða 59% við að aðstæður verði betri, um 18% að þær verði verri en um 22% vænta óbreyttra aðstæðna.

„Þessi niðurstaða er ámóta afleit og fram kom í sambærilegri könnun í desember en mun verri en fram hefur komið í fyrri reglubundnum könnunum um sama efni eða allt frá árinu 2002,“ segir á vef SA.

Samtökin segir niðurstöður könnunarinnar bera með sér margvísleg einkenni banka- og gjaldmiðilskreppunnar.

„Eins og í samsvarandi könnun í desember eru núverandi aðstæður í atvinnulífinu afleitar. Stjórnendur eiga almennt ekki von á að breyting verði til batnaðar á næstu sex mánuðum en ívið meiri bjartsýni kemur fram þegar horft er ár fram í tímann. Öll einkenni eftirspurnar- og verðbólguþrýstings eru horfin úr hagkerfinu,“ segir á vef SA.

Sjá nánar á vef SA.