Á milli áranna 2013 og 2014 hækkuðu regluleg laun um 6,0% að meðaltali. Starfsmenn á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 5,8%, ríkisstarfsmenn um 6,2% og starfsmenn sveitarfélaga um 6,5%.

Regluleg laun voru að meðaltali 1,3% hærri á fjórða ársfjórðungi 2014 en á ársfjórðungnum á undan. Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2013 var 6,7% að meðaltali, hækkunin var 6,0% á almennum vinnumarkaði og 8,4% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,8% og laun starfsmanna sveitarfélaga um 10,3%. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Stjórnendur hækka minnst á milli ára

Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2013 var mest hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki eða um 7,7% en minnst hjá stjórnendum eða um 5,2%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækni- og sérmenntaðs starfsfólks um 6,5%, skrifstofufólks um 6,2%, sérfræðinga um 5,9%, verkafólks um 5,6% og iðnaðarmanna um 5,3%. Á milli áranna 2013 og 2014 var hækkun launa eftir starfsstéttum á bilinu 5,2% og 7,0%, mest hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki en minnst hjá stjórnendum.

Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2013 var mest í samgöngum eða um 7,2% en minnst í iðnaði eða um 4,6%. Á milli áranna 2013 og 2014 var hækkun launa í byggingarstarfsemi 7,4%, í samgöngum 6,8%, í fjármálaþjónustu 6,1%, í verslun 6,0% og í iðnaði 4,6%.