Farangursgjöld eru reglulega til athugunar hjá stjórnendum Icelandair, þessu greinir Túristi.is frá. En samkvæmt úttekt síðunnar rukka sjö af þeim sextán flugfélögum sem halda uppi áætlunarflugi frá Keflavíkurflugvelli farþega aukalega fyrir innritaðan farangur. Áður fyrr tíðkuðust farangursgjöld einungis hjá lággjaldaflugfélögum en sífellt bætast fleiri hefðbundin flugfélög, til að mynda Air France, í hóp þeirra sem rukka aukagjald fyrir farangur.

Í dag mega farþegar Icelandair innrita eina tösku án endurgjalds ef flogið er innan Evrópu en tvær töskur fylgja með fargjaldinu þegar haldið er vestur um haf. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir aðspurður um hvort líklegt sé að Icelandair bjóði fargjöld án farangursheimildar á næstu árum, að engar ákvarðanir um þetta hafi verið teknar en að þessi mál séu í stöðugri skoðun hjá þeim.

Farangjurgjöld eru mismunandi há samkvæmt úttekt Túrista, lægsta gjaldið er 1.730 krónur en það hæsta 4.990 krónur fyrir aðra leiðina. Farþegar borga því allt að tíu þúsund krónur undir eina tösku. Tvö flugfélög Wow air og Wizz air láta farþega í sumum tilvikum borga aukalega fyrir handfarangur.