Forstjóri og stjórnarformaður Danól og Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson hafa keypt fyrirtækin, sem verið hafa í eigu Einars Kristinssonar og fjölskyldu undanfarin ár, að því er fram kemur í tilkynningu.

Andri Þór Guðmundsson forstjóri og Októ Einarsson stjórnarformaður, fara með u.þ.b. 70% hlut ásamt Kaupþingi sem eignast u.þ.b. 30%. Kaupþing sá um ráðgjöf og fjármögnun fyrir hönd kaupenda en ráðgefendur seljanda voru Ernst & Young og Lögfræðistofa Reykjavíkur. Einar Kristinsson, fyrrum eigandi, mun starfa áfram með nýjum eigendum og sitja í stjórn beggja félaga.

Andri Þór hefur verið forstjóri Ölgerðarinnar frá árinu 2004 en var áður fjármálastjóri fyrirtækisins. Októ hefur unnið að uppbyggingu beggja fyrirtækja undanfarin ár, sem stjórnarformaður Ölgerðarinnar frá 2002 og framkvæmdastjóri hjá Danól.

Velta fyrirtækjanna tveggja hefur aukist mjög á undanförnum árum og nam tæpum 10 milljörðum króna í fyrra.