Bakkavör hefur selt dótturfélag sitt, Anglia Crown, til stjórnenda Anglia.

Anglia Crown sérhæfir sig í framleiðslu tilbúinna máltíða fyrir heilbrigðisstofnanir.

Ársvelta Anglia Crown er um 15 milljónir punda, um 2,2 milljarðar króna. Það samsvarar tæplega prósenti af veltu Bakkavör samstæðunnar, sem nam um 1,8 milljörðum punda í fyrra, eða 255 milljörðum króna.

Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundsson, eiga rétt ríflega helmingshlut í Bakkavör, sem í heild er metið á tæplega 160 milljarða króna.