Stjórn SÍF hf. hefur ákveðið að fullnýta heimild sína frá 6. nóvember 2004 til að auka hlutafé félagsins um 160.000.000 hluti vegna kaupa stjórnenda og annarra starfsmanna Labeyrie Group á hlutum í SÍF hf. Gert er ráð fyrir að hlutaféð verði að fullu hækkað sem því nemur fyrir lok febrúar næstkomandi og verður heildarhlutafé SÍF hf. þá 5.875.883.192 krónur að nafnverði sem skiptist í jafn marga hluti.

Stjórn SÍF hf. ákvað á fundi sínum 15. desember 2004, að nýta heimildina að hluta, með því að hækka hlutafé félagsins um 52.329.526 hluti vegna kaupa tiltekinna stjórnenda á hlutum í félaginu, á genginu 4,32.