Stjórnendur Marel eru ósammála forsendum sem Fjármálaeftirlitið (FME) gefur sér í úrskurði sínum um að sekta Marel fyrir brot á ákvæðum laga um verðbréfaviðskipti. Ákvörðun FME var birt í morgun. Í fréttatilkynningu taka stjórnendur Marel fram að „málið varðar fyrst og fremst formsatriði og mismunandi túlkun aðila á ákvæðum laga um verðbréfaviðskipti er lúta að meðferð innherjaupplýsinga."

Svo segir: „Niðurstaða FME er að tilkynningaskyldar innherjaupplýsingar hafi myndast hjá Marel, strax að afloknum stjórnarfundi félagsins, miðvikudaginn 23. september 2009, þegar félagið ákvað að ganga til viðræðna við Columbia Wanger um hugsanleg kaup sjóða á þeirra vegum á hlutabréfum í Marel.

Það er afstaða Marel að ekki hafi stofnast tilkynningarskylda fyrr en föstudaginn 25. september 2009 þegar líkur á að til viðskipta myndi stofnast voru orðnar meiri en minni, fjárhæð viðskipta ákveðin svo og hverjir væru hinir raunverulegu kaupendur hlutabréfanna. Marel birti upplýsingarnar eins fljótt og auðið var í kjölfar þess, í samræmi við ákvæði laga. Tekið skal fram að ákvörðunin um tímasetningu birtingar var tekin að vandlega yfirlögðu ráði og í nánu samráði við ráðgjafa félagsins, sem telja að tímasetning birtingar Marels sé í samræmi við lög og venju á alþjóðlegum fjármálamörkuðum," segir í tilkynningunni.

Stjórnendur Marel furða sig í tilkynningunni á málsmeðferð FME, ekki síst í ljósi þess að um matsatriði sé að ræða. Óskaði félagið m.a. eftir fundum með FME til að fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Fram kemur að þeim beiðnum var ávallt hafnað. Þá segir að Marel hafi gert FME skriflega grein fyrir afstöðu sinni, sem og því mati sínu að umrædd ákvörðun sé háð verulegum annmörkum er kunni að valda ógildingu hennar. Stjórn FME hafi engu að síður hafnað að afturkalla ákvörðun sína.

„Það er einlægur ásetningur Marel að fylgja í hvívetna leikreglum á fjármálamarkaði og ábendingum eftirlitsaðila. Í ljósi þess kallar félagið eftir því að slíkar leikreglur verði skýrari og samskipti FME við eftirlitsskylda aðila bætt enn frekar. Þrátt fyrir þann ágreining sem uppi er í þessu máli um túlkun á viðkomandi ákvæðum laga um verðbréfaviðskipti mun Marel ekki aðhafast frekar hvað þetta varðar," segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.