Mun fleiri stjórnendur telja núverandi aðstæður góðar í atvinnulífinu en að þær séu slæmar og hefur munurinn aukist mikið frá síðustu könnun Capacent meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins. Helmingur stjórnenda telur að aðstæður batni á næstu sex mánuðum og jafnstór hópur telur þær verða óbreyttar.

Þetta kemur fram í könnun á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækjanna sem gerð var í september fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands. Einnig kemur fram að nægt framboð sé af starfsfólki en helst skorti þó starfsmenn í byggingarstarfsemi. Stjórnendur geri þó ekki ráð fyrir fjölgun starfsmanna næstu sex mánuði.

Þá leiðir könnunin í ljós að fjárfestingar aukast á árinu, einkum í flutningum og ferðaþjónustu. Að jafnaði vænta stjórnendur 3% verðbólgu næstu 12 og 24 mánuði en þó vænta þeir einungis 1% hækkun á vörum og þjónustu eigin fyrirtækja næstu sex mánuði. Flestir stjórendur búast við að gengi krónunnar verði stöðugt næstu 12 mánuði og að stýrivextir Seðlabankans verði óbreyttir.

Lesa má umfjöllun um könnunina á vef Samtaka atvinnulífsins.