Um 63% stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum sjá fram á samdrátt í íslenska efnahagskefinu á næstu 12 mánuðum. Þetta er meðal niðurstaðna úr Stjórnendakönnun MMR sem framkvæmd var dagana 29. maí til 6. júní 2019.

„Stjórnendakönnun MMR skoðar meðal annars viðhorf stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum til horfa í íslensku hagkerfi ásamt viðhorfa til mikilvægra þátta í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og stofnana," segir í fréttatilkynningu.

Stjórnendur svartsýnni

„Stjórnendur voru svartsýnni á horfur í íslensku efnahagslífi nú heldur en við síðustu mælingu í febrúar 2017. Við síðustu mælingu sáu 86% stjórnenda fram á að íslenska hagkerfið myndi vaxa næstu 12 mánuðina en einungis 12% stjórnenda sjá nú fram á vöxt í hagkerfinu," segir í tilkynningunni.

„Þá lækkaði hlutfall þeirra stjórnenda um tæp 38 prósentustig sem sem sáu fram á aukna eftirspurn á vöru/þjónustu en 32% sáu nú fram á aukningu í eftirspurn, samanborið við tæp 70% í síðustu mælingu. Hlutfall þeirra stjórnenda sem sáu fram á aukna veltu lækkaði um rúm 30 prósentustig milli mælinga og hlutfall þeirra sem sáu fram á aukna arðsemi lækkaði um 24 prósentustig."

Telja að launakostnaður aukist

Stór hluti stjórnenda (69%) gerði ráð fyrir að launakostnaður myndi aukast næstu 12 mánuði. Þá töldu 60% stjórnenda að launakostnaður myndi aukast eitthvað en 9% að hann myndi aukast mikið. Tæp 17% stjórnenda töldu að starfsmönnum fyrirtækisins/stofnunarinnar myndi fjölga á næstu 12 mánuðum, 53% töldu að starfsmannafjöldi yrði óbreyttur og 30% að starfsmönnum myndi fækka. Þá bjuggust 31% stjórnenda við að markaðsstarf myndi aukast og 17% að markaðsstarf myndi dragast saman en 51% töldu að markaðsstarf myndi haldast óbreytt.