Stjórn Samtaka iðnaðarins hefur gert starfslokasamning við Almar Guðmundsson sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra síðastliðin tæp þrjú ár. Almar lætur af störfum frá og með deginum í dag og mun Jón Bjarni Gunnarsson gegna starfi framkvæmdastjóra tímabundið að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins.

Þar segir einnig að stjórn samtakanna harmi að fréttir af ákvörðuninni hafi birst í fjölmiðlum áður en formleg tilkynning um hana hafi verið send út frá samtökunum.

Haft er eftir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni stjórnar SI: „Stjórn Samtaka iðnaðarins vill færa Almari Guðmundssyni kærar þakkir fyrir störf hans fyrir samtökin sem hann hefur gegnt af trúmennsku og dugnaði. Almar hefur tekið þátt í miklu umbreytingarstarfi hjá samtökunum og gegnt lykilhlutverki í að auka slagkraft þeirra og sýnileika. Stjórnin mat það hins vegar sem svo að þetta væri rétti tímapunkturinn til að leita að nýjum aðila til að leiða daglegt starf samtakanna og byggja ofan á góðan árangur Almars.“