Stjórnir SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans, dótturfélags SPRON, hafa ákveðið að vinna að sameiningu félaganna.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en þar er sameiningin sagður liður í þeim skipulagsbreytingum sem unnið hefur verið að á undanförnu til þess að mæta breyttu rekstrarumhverfi og ná fram þeirri hagræðingu sem nauðsynleg er við núverandi aðstæður.

Unnið verður að  sameiningu fyrirtækjanna á næstu vikum og verða frekari upplýsingar um sameininguna birtar um leið og hægt er.