Í vikunni sem leið var haldinn stofnfundur stjórnmálafélagsins Deiglunnar, sem byggir á grunni samnefnds vefrits. Samkvæmt samþykktum félagsins er tilgangur þess m.a. að vinna að framgangi frjálslyndra viðhorfa.

Drífa Kristín Sigurðardóttir var kjörin fyrsti formaður félagsins. Með henni í stjórn eru Katrín Helga Hallgrímsdóttir, Tómas Hafliðason, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, Stefanía Sigurðardóttir, Óli Örn Eiríksson, Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, Óskar Hafnfjörð Auðunsson og Erla Margrét Gunnarsdóttir.