Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir stjórnsýslulegt hneyksli hvernig staðið var að ráðningu meirihluta borgarráðs á nýjum borgarritara, en eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um tekur Stefán Eiríksson fyrrum lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins við starfinu.

„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar sátu hjá við afgreiðslu málsins vegna óviðunandi vinnubragða borgarstjóra og fulltrúa meirihlutans í málinu,“ segir Kjartan og vísar í meðfylgjandi bókun minnihlutans vegna málsins.

„Í raun er um stjórnsýslulegt hneyksli að ræða því gengið er út frá því að fulltrúum í fjölskipuðu stjórnvaldi sé gefinn kostur á að kynna sér gögn málsins áður en ákvörðun er tekin en svo var alls ekki í þessu tilviki.

Borgarstjóri virðist líta svo á að hlutverk borgarráðsmanna sé að samþykkja tillögur frá honum án þess að þeir eigi kost á því að kynna sér gögn viðkomandi mál.“

Var ekki á dagskrá fundarins

„Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og flugvallarvina gera alvarlega athugasemd við vinnubrögð borgarstjóra og meirihluta borgarráðs vegna ráðningar borgarritara,“ segir í bókuninni.

„Við slíka ráðningu hlýtur að vera hægt að gera kröfu um vönduð vinnubrögð enda um að ræða eitt mikilvægasta og valdamesta embætti í borgarkerfinu.

Umrætt mál var ekki á útsendri dagskrá fundarins og fengu borgarráðsmenn minnihlutans engin gögn send vegna þess fyrir fundinn en um sautján umsækjendur er að ræða.

Fengu 5 blaðsíður á miðjum fundi til samþykktar í lok hans

Á miðjum fundi fengu fulltrúar minnihlutans loks eitt eintak afhent af tillögu borgarstjóra í málinu með þeim skilaboðum að hún yrði afgreidd í lok fundar.

Tillagan er fimm blaðsíður að lengd og virðist borgarstjóri hafa ætlast til þess að fulltrúar minnihlutans læsu hana samhliða öðrum málarekstri á fundinum.

Ekki orðið við ósk um frestun

Ekki var orðið við ósk fulltrúa minnihlutans um frestun málsins til næsta fundar og að þeir gætu þannig fullnægt lögboðnum skilyrðum um að kjörnir fulltrúar kynni sér gögn máls áður en ákvörðun.

Slík vinnubrögð eru algerlega óviðunandi og ganga í berhögg við reglur stjórnsýsluréttar. Slík vinnubrögð eru því miður ekki einsdæmi hjá Reykjavíkurborg undir stjórn meirihluta Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Pírata og Vinstri grænna.

Nýráðnum borgarritara er óskað velfarnaðar í störfum sínum.“