Heston Blumenthal, eigandi The Fat Duck sem er þriðji besti veitingarstaður í heimi að mati S.Pellegrino, mælir með því að kaupa þorsk úr sjálfbærum veiðum. Þetta kemur fram á vef Fiskifrétta .
Blumenthal opnaði nýjan veitingastað í London í byrjun febrúar. Á veitingastaðnum sem heitir Dinner eru 110 sæti og eru öll borð upppöntuð næstu þrjá mánuðina. Það er því ekki ofmælt þegar sagt er að Blumenthal sé einn farsælasti kokkur Bretlandseyja.
Fram kom á ráðstefnu sem haldin var fyrir norska fiskútflytjendur í vikunni í Grimsby að Blumenthal hafi nýlega mælt með þorski úr sjálfbærum veiðum fyrir viðskiptavini sælkeraverslunarkeðjunnar Waitrose . Sá fiskur kemur aðallega frá Íslandi og Noregi.
Eftir meðmæli Blumenthal jókst sala á þorki um 800%. Hér má sjá frétt Fiskifrétta í heild sinni.