Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi voru veitt í fyrsta sinn fimmtudaginn 4. mars að viðstöddum Forseta Íslands.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á framúrskarandi starfi hins almenna stjórnenda og hvetja hann til áframhaldandi faglegra vinnubragða og árangurs á öllum sviðum stjórnunar og rekstrar að því er segir í tilkynningu.
Stjórnunarverðlaunin hljóta þeir stjórnendur, sem þykja hafa skarað framúr á sínu sviði. Verðlaunin að þessu sinni voru veitt í fjórum flokkum: Fjármála-, mannauðs- og þjónustustjórnun ásamt hvatningarverðlaunum.
Í tilkynningu segir að mikill fjöldi vel rökstuddra tilnefninga barst dómnefnd, sem átti úr vöndu að velja. Tilnefningar til Stjórnunarverðlaunanna verða að vera ítarlega rökstuddar úr frá fjórum megin þáttum eða viðmiðum, sem lesa má nánar um á vefsíðu Stjórnvísi.
Að þessu sinni hlutu stjórnunarverðlaunin: 1. Í flokki fjármálastjórnunar: Hjörleifur Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar. 2. Í flokki mannauðsstjórnunar: Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Securitas. 3. Í flokki þjónustustjórnunar: Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs ÁTVR. 4. Sérstök hvatningarverðlaun hlaut: Unnur Ágústsdóttir, sviðsstjóri rekstrarsviðs, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík.