Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti í dag úthlutun styrkja samtals að upphæð 443 milljóna kr. til ljósleiðaravæðingar í dreifbýli, sem veittir eru í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt á grundvelli fjárfestingarátaks ríkisstjórnarinnar. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Styrkir til sveitarfélaga námu að þessu sinni samtals 317,5 milljónir kr. Einnig var samið við Neyðarlínuna sem fékk 125,5 milljónir kr. til að leggja ljósleiðara og byggja upp fjarskiptainnviði utan markaðssvæða.

Nýverið var samþykkt 400 milljóna kr. viðbótarfjárveiting til fjarskiptasjóðs sem verja skal til verkefnisins og tengdrar innviðauppbyggingar. Fjárveitingin er liður í sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda fram á næsta vor, til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Þessu til viðbótar leggur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til 43 milljónir kr. sem framlag úr byggðaáætlun.

„Við erum óðfluga að nálgast takmark okkar að leggja ljósleiðara um nánast allt dreifbýli landsins. Með viðbótarfjárveitingu í ár er unnt að flýta slíkum framkvæmdum enn frekar. Verkefnið Ísland ljóstengt er ein af lykil forsendum búsetugæða, atvinnusköpunar og samkeppnishæfni landsins alls,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.