Félag atvinnurekenda telur að stjórnvöld ættu að skoða þörfina á að framlengja ýmis stuðningsúrræði fyrir fyrirtæki sem að óbreyttu falla úr gildi á næstu vikum. Telur FA að þróun heimsfaraldursins, bæði hér á landi sem og í ýmsum viðskiptalöndum Íslands, kalli á að málið sé skoðað og hefur félagið sent fjármálaráðherra erindi þess efnis. Þetta kemur fram á vef FA .

„Í bréfi FA til Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra segir að þótt atvinnulífið hafi náð sér vel á strik með afléttingu samkomutakmarkana og minnkandi hömlum á landamærunum sýni þróun faraldursins, jafnt hér á landi og á heimsvísu, að óvissa um framhaldið sé áfram mikil. Sums staðar í nágranna- og markaðslöndum Íslands hafi samkomutakmarkanir verið hertar á ný og áfram megi búast við truflunum á ferðalögum. Markaðir ýmissa fyrirtækja, jafnt í þjónustu- og vöruútflutningi, séu því áfram í óvissu,“ segir í frétt FA.

„Fjölgun smita innanlands þýðir auknar líkur á að einangrun og sóttkví hafi áhrif á starfsemi fyrirtækja, jafnvel þótt bólusetningarhlutfall sé orðið hátt,“ segir í erindinu.

FA telji að ýmis stuðningsúrræði stjórnvalda hafi reynst fyrirtækjum, sem lent hafi í erfiðleikum vegna heimsfaraldursins, vel og hjálpað þeim að halda sér á floti þar til viðspyrna finnist á nýjan leik. Félagið bendi þó á að nú séu aðeins nokkrar vikur í að ýmis þessara stuðningsúrræða renni sitt skeið og nefnir eftirfarandi dæmi:

  • Lagaákvæði um stuðning við fyrirtæki vegna launagreiðslna til starfsmanna í sóttkví taka til launagreiðslna sem inntar eru af hendi til og með 31. desember 2021.
  • Reglugerðarákvæði um átakið Hefjum störf, þar sem fyrirtæki geta ráðið starfsfólk með styrk frá Vinnumálastofnun, falla úr gildi um áramót.
  • Viðspyrnustyrkir gilda út nóvember næstkomandi, þ.e. í rúman mánuð til viðbótar.
  • Frestun gjalddaga staðgreiðslu launa og staðgreiðslu tryggingagjalds gildir eingöngu út árið.

„Að mati FA er nauðsynlegt að skoða heildstætt þau úrræði sem hafa reynzt vel til aðstoðar fyrirtækjum og horfast í augu við að óvissan um þróun faraldursins og nauðsynlegra sóttvarnaaðgerða er áfram mikil,“ segir í bréfinu, sem Ólafur Stephensen framkvæmastjóri undirritar. „Þótt almennt talað sé bjartara framundan er líklegt að fyrirtæki lendi áfram í tímabundnum vandræðum vegna faraldursins. Því er að mati FA nauðsynlegt að gera ráðstafanir til lengri tíma til að geta með sveigjanlegum hætti brugðizt við áhrifum faraldursins hverju sinni.“